UPPI OG NIÐRI OG ÞAR Í MIÐJU- tónleikar Önnu Jónsdóttur
sksiglo.is | Almennt | 22.06.2015 | 19:54 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 240 | Athugasemdir ( )
UPPI OG NIÐRI OG ÞAR Í MIÐJU - tónleikar Önnu Jónsdóttur verða haldnir í Gránu (Síldarminjasafninu) á Jónsmessu, miðvikudag kl 17.
Anna er sópransöngkona og á tónleikum sínum víða um land syngur hún íslensk þjóðlög. Á ferð sinni velur hún helst sérkennilega staði fyrir tónlist sína, hella, vita, lýsistanka - staði sem búa yfir góðum hljómburði og dulúð.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis en frjáls framlög þegin.
Þess má geta að Anna á ættir að rekja til Fljóta og Siglufjarðar.
Athugasemdir