Varptími fugla að hefjast

Varptími fugla að hefjast Vakin er athygli á því að varp fugla er að hefjast og er þeim tilmælum beint til fólks að taka tillit til þess og vera ekki á

Fréttir

Varptími fugla að hefjast

www.fjallabyggd.is
www.fjallabyggd.is
Vakin er athygli á því að varp fugla er að hefjast og er þeim tilmælum beint til fólks að taka tillit til þess og vera ekki á ferð um varpsvæðin að óþörfu og alls ekki með hunda.
 
Á Siglufirði er það svæðið í kringum Leirurnar, Langeyrartjörn og á tanganum við Innri höfn.
Í Ólafsfirði er það svæðið í kringum Ólafsfjarðarvatn.
 
Varðandi hundasvæði á Siglufirði þá er það í Skútudal sunnan vegarins sem liggur upp í Héðinsfjarðargöng. Svæðið er óafgirt og stórt. Hægt er að nálgast svæðið frá tveimur stöðum. Þegar keyrt er frá bænum er hægt að beygja til hægri annars vegar við afleggjara rétt ofan við kirkjugarðinn og hins vegar við afleggjara rétt utan við munna Héðinsfjarðarganga.
Hundasvæðið í Ólafsfirði er í Skeggjabrekkudal sunnan golfvallar. Svæðið er óafgirt og stórt. Hægt er að nálgast svæðið með því að keyra Garðsveg og beygja upp í dalinn við afleggjara rétt sunnan við brúna yfir ána. 

Athugasemdir

26.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst