Veðurblíða
sksiglo.is | Almennt | 16.09.2014 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 559 | Athugasemdir ( )
Það er búin að vera aldeilis veðurblíðan á Sigló um
helgina. 18 stiga hiti mældist víst einhverstaðar á stór-Fjallabyggðarsvæðinu
síðastliðinn sunnudag og var veðrið ekki síðra á
sunnudagskvöldið.
Það er ekki laust við það að maður hafi smá áhyggjur af
því að það fari fljótlega að koma að skuldadögum og Siglfirðingar fái að borga all hressilega fyrir þessa veðurblíðu
með allnokkrum stormi, kulda og jafnvel snjókomu í grennd, og svo líklega asa hláku þegar líður að jólum.
Ég skellti mér út á sunnudagskvöldið og smellti af nokkrum myndum til þess að lofa ykkur að dást að. Klæðnaðurinn sem ég valdi mér var ekki af verri sortinni,
hnésíðar stuttbuxur, leðurtöfflur og neon-appelsínugulur netabolur. Ekki það að það komi ykkur nokkuð við hvernig ég var
klæddur þegar ég tók þessar myndir, það er eingöngu skrifað hér til að lengja pistilinn.
En núna ætla ég að snarhætta að röfla um veðrið og
klæðnað og lofa ykkur frekar að skoða myndirnar.
Hér
eru þeir Tommi og Örvar að landa úr Kalda SI.
Þessari náði ég af honum Gauta. Einn kaffibolli á meðan beðið er eftir því að Kaldi komi inn.
Ég
hitti Sigurð skipstjóra þar sem hann var að mála tröppurnar hjá sér.
Athugasemdir