Víðavangshlaupið Meðan fætur bera mig 2014
Þann 7. júní verður víðavangshlaup MFBM haldið á Siglufirði í annað sinn.
Í þetta sinn ætlum við að safna fé fyrir Félag áhugafólks um Downs-heilkenni. Við viljum endilega sjá alla koma og hlaupa/ganga með okkur og styrkja gott málefni í leiðinni.
Hlaupið hefst kl 11 frá skólalóð Grunnskóla Siglufjarðar við Norðurgötu og endar við Ráðhústorgið. (Hlaupa/gönguleið verður kynnt á staðnum).
Hægt er að skrá sig í hlaupið/gönguna inn á vefnuð mfbm.is undir skráning á Siglufirði.
Skráningargjald er 1000kr . Einnig verðum við með söfnunarbauka á staðnum, þar sem hægt verður að leggja til frjáls framlög.
Frekari upplýsingar um hlaupið er hægt að fá hjá Bryndís Hafþórsdóttur í síma 866-1976
Vonandi sjáum við sem flesta
Athugasemdir