Vinna á Pæjumóti Sparisjóðsins og Rauðku 2014
Nú styttist í Pæjumótið okkar og undirbúningsvinnan er í fullum gangi. Umfang mótsins er svipað og undanfarin ár og þarf
félagið á allri aðstoð við framkvæmd mótsins. Sjálfboðaliðavinna er lykillinn að góðri framkvæmd mótsins og
óskar félagið eftir aðstoð frá öllum þeim sem geta.
Mótsgjaldið á mótið í ár er 10.500.- en iðkendur KF þurfa að greiða 5.500.- gegn því að foreldri/ aðstandandi vinni
tvær vaktir á mótinu. Vinnan tengist mötuneyti, sjoppu eða dómgæslu. Jafnframt geta foreldrar iðkenda sem ekki taka þátt í
mótinu fengið niðurgreidd haustæfingagjöld fyrir sömu upphæð fyrir tvær vaktir.
Vaktir í mötuneyti:
Föstudagur
Morgunmatur á Rauðku kl. 7-10
Hádegismatur á Hóli kl. 11-14
Kvöldmatur á Rauðku kl. 17:30-20:30
Laugardagur
Morgunmatur á Rauðku kl. 7-10
Hádegismatur á Hóli kl. 11-14
Kvöldmatur á Rauðku kl. 17:30-20:30
Sunnudagur
Morgunmatur á Rauðku kl. 7-10
Vaktir í sjoppu:
Föstudagur kl. 9-12, kl. 12-15 og kl. 15-18
Laugardagur kl. 9-12, kl. 12-15 og kl. 15-18
Sunnudagur kl. 9-12 og kl. 12-15
Dómgæsla:
Föstudagur kl. 9-12, kl. 12-15 og kl. 15-18
Hægt er að hafa samband við Dagný (dagny@fjallabyggd.is eða 861-7164) vegna sjoppuvakta, Möggu Kristins (margretk@sps.is eða 822-8522) vegna mötuneytisvakta, Jón Árna (844-8263) vegna dómaravakta eða Óskar (kf@kfbolti.is eða 898-7093) vegna annarra verka. Æskilegt er að viðkomandi setji sig í samband við okkur í síðasta lagi
þriðjudaginn 05.ágúst.
Kv. Pæjumótsnefnd
Athugasemdir