VISTVÆNIR STRAUMAR Á HANDVERKSHÁTÍÐ

VISTVÆNIR STRAUMAR Á HANDVERKSHÁTÍÐ Vistvæn hráefni setja sterkan svip á Handverkshátíð 2014 sem haldin verður í 22. sinn í Eyjafajarðarsveit 7.-10.

Fréttir

VISTVÆNIR STRAUMAR Á HANDVERKSHÁTÍÐ

 

Innsent efni.

Vistvæn hráefni setja sterkan svip á Handverkshátíð 2014 sem haldin verður í 22. sinn í Eyjafajarðarsveit 7.-10. ágúst. Mikill fjöldi umsókna hefur borist hátíðinni og endurspeglar hún alla jafna það sem hæst ber í handverki hverju sinni; verk, framleiðsluaðferðir og hráefni. 

Sú gróska sem verið hefur í íslensku handverki undanfarin ár er hvergi á undanhaldi og núna virðist sem lífræn og "Fair Trade" vottuð hráefni ásamt endurvinnslu og vistvænni framleiðslu séu ríkjandi í því fjölbreytta handverki sem lagt hefur verið fram. 

Hátíðin er löngu orðin einn stærsti menningarviðburður á Eyjafjarðarsvæðinu jafnframt því að vera stærsti vettvangur handverksfólks og hönnuða á landinu með um 100 sýnendur og árlega um 15-20 þúsund heimsóknir.

Umsóknarfrestur Handverkshátíðar 2014 rennur út 1. apríl n.k.. 
Nánari upplýsingar er að finna á www.handverkhatid.is

handverk

handverk

hanverk


Athugasemdir

26.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst