Auga fyrir auga – tönn fyrir tönn

Auga fyrir auga – tönn fyrir tönn Er sú hugmyndafræði sem íslenskt samfélag aðhyllist þessa dagana. Þær raddir sem heyrast eru allar á einn veg: Að við

Fréttir

Auga fyrir auga – tönn fyrir tönn

Signý Sigurðardóttir
Signý Sigurðardóttir
Er sú hugmyndafræði sem íslenskt samfélag aðhyllist þessa dagana. Þær raddir sem heyrast eru allar á einn veg: Að við öll bíðum í ofvæni eftir því að ákveðinn nafngreindur hópur manna verði fundinn sekur svo okkur öllum hinum geti liðið vel. Réttarkerfi eða þrískipting ríkisvalds eru léttvæg fundin og skipta engu máli. Látið er að því liggja að við bíðum öll í ofvæni eftir útkomu rannsóknarskýrslu til að segja okkur hverjir séu sökudólgar að því sem hér gerðist.

Hatur og hefnd - á það að vera leið okkar íslensks almennings til réttlátara og betra samfélags? Er það sá lærdómur sem við viljum draga af því sem hér gerðist? Eru þetta þau gildi sem við viljum byggja nýtt samfélag á?

Ég tilkynni hér með að ég er Íslendingur. Er sem slík fulltrúi þess hóps sem kallast íslensk þjóð. Ég lýsi því hér með yfir að ég bíð ekki eftir því að rannsóknarskýrslan komi út og því síður bíð ég í ofvæni eftir því að sjá valinn hóp nafngreindra einstaklinga á bak við lás og slá. Ég frábið mér allar yfirlýsingar kjörinna fulltrúa í þá veru.

Umfram allt geri ég þá kröfu til kjörinna fulltrúa að þeir vita valdmörk sín. Ég geri þá kröfu til kjörinna fulltrúa að þeir láti réttarkerfinu eftir að sjá um rannsókn, sekt og sýknu manna og gefi því þann tíma sem þarf til þess.

Leiðin til trausts í samfélagi okkar er sú að leyfa því sem gera þarf að taka þann tíma sem það þarf. Það er engin flýtileiði til að sannleikanum. Leikreglur verður að virða og enginn skal sekur fyrr en sekt hans er sönnuð. Það er grundvallaratriði sem engan afslátt má gefa á.

Að næra hatrið hefur aldrei leitt til góðs. Að benda á sökudólga felur ekki í sér neinar lausnir. Að veita aðhald og vera gagnrýnin á allt sem er er hollt og gott hverju samfélagi.

Enginn nema við - íslenskur almenningur - stjórnar því í hvaða átt íslenskt samfélag þróast.

Athugasemdir

09.janúar 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst