Laugardagskvíðinn
þjakar Ólínu Þorvarðardóttur mikið þessa dagana.
Það er vissulega ekki gott að lögreglan skuli ekki geta verið viðstödd til að verja Ólínu og ríkisstjórnarliðið fyrir hugsanlegum fagnaðarlátum stuðningsmanna á Austurvelli.Margsannað er að svona fagnaðarsamkundur geta farið úr böndum og þeir sem hyllinnar njóta þurft að koma sér í skjól fyrir aðdáendum sínum.
Mörgum er i fersku minni þingsetningin í fyrra. Þá gekk frú Dorrit Mussajef hnarreist næst aðdáendahópnum úr kirkjunni að Alþingishúsinu, og deplaði ekki auga þó einhverjir götustrákar væru með ólæti. Menn sáu svo útundan sér einhvern lítinn kall skjótast í hnipri á bak við hina kirkjugestina og hverfa sem örskot innum bakdyr þinghússins og komast þannig hjá fagnaðarlátum stuðningsmanna sinna.Snarráðir menn eru allstaðar í uppáhaldi fyrir vaskleik sinn.
Ætti Ólína ekki bara að
biðja hana frú Dorrit að leiða sig þessa erfiðu metra úr kirkjunni?
Hinir vinsælustu geta bara tekið þetta á sprettinum bakvið yfir götuna í
Alþingishúsið. Ef einhverjir stuðningsmenn nenna þá að mæta svona
snemma á laugardegi. Þeir Sjálfstæðismenn sem eru á venjulegum
laugardagsfundum í Kópavogi akkúrat á þessum tíma, geta auðvitað ekki
komið til að klappa fyrir sínum mönnum. Þeir eeru hugsanlega ekki
hrifnir af því að vera með þingsetninguna á þessum tíma en svo verður
víst að vera.En stjórnarliðarnir í Kópavogi eru ekki með neina fundi á
laugardögum og geta því mætt til að brjóta upp hversdagsleikann hjá sér.
Vonandi
verður Ólína með hýrri há og laus úr þessum laugardagskvíða.Hvað er svo
sem líka að óttast þegar ástmegir þjóðarinnar fara að bæna sig áður en
þeir ganga til sinna vinsælu verka. Frú Dorrit og Herra Ólafur eru jú
með þeim og þau heiðurshjónin eru sannarlega fólk fólksins sem það vill
að verði áfram á Bessatöðum.
Engan laugadagskvíða Ólína, þú sem ert bæði fögur og fótfrá og kyndilberi hinna fjölmörgu kjósenda þinna.
Athugasemdir