Miðsumarhret í vændum ?

Miðsumarhret í vændum ? Er búinn að vera að blaða í gegnum tölvukeyrslur og alveg sama hvar borið er niður, svæsinn háloftakuldapollur virðist samkvæmt

Fréttir

Miðsumarhret í vændum ?

Einar Sveinbjörnsson
Einar Sveinbjörnsson
Er búinn að vera að blaða í gegnum tölvukeyrslur og alveg sama hvar borið er niður, svæsinn háloftakuldapollur virðist samkvæmt spám ætla að stefna beint yfir okkur úr NNA seint á fimmtudag. Kortið sýnir staðsetningu hans skv. spá GFS kl 06 að morgni fimmtudags.

Þessari heimsókn  fylgir einhverslags N-átt með úrkomu og svo köldu lofti að það er varla að maður leggi enn trúnað á spárnar, sérstaklega í ljósi þess hvað almennt séð hlýindi hafa verið viðloðandi á landinu frá því seint í júní.

Ef spáin gengur eftir eins og hún er nú reiknuð gefur hún nokkrum af sögulegustu miðsumarhretum síðustu áratuga ekkert eftir !  Það þýðir m.a. snjókomu á norðurhálendinu og niður undir byggð víða Norðanlands.

Sem dæmi um túlkun á stöðunni birti ég hér spákort hita úr  72 klst. keyrslu HRAS frá því í nótt og gildir kl. 00 á föstudag.  Blái frostliturinn er nokkuð víðáttumikill yfir miðju landinu og rauði flekkurinn djúpt suður af landinu er +10°C svæðið ! 

En maður á svo sem eftir að sjá þetta gerast !! 


Athugasemdir

10.janúar 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst