Ný hugmyndafræði við stjórn fiskveiða
Starfshópurinn hefur
skilaði skýrslu til sjávarútvegsráðherra með niðurstöðum sínum um
einstök mál og gert tillögur til úrbóta í þeim álitaefnum sem uppi hafa
verið í greininni. Auk þess leggur hópurinn fram valkosti um leiðir til
við stjórn fiskveiða til langs tíma og líklegt er að sem mest sátt geti
verið um.
Í stuttu máli er megin niðurstaðan sú að allir aðilar
starfshópsins að undanskildum LÍÚ eru þeirrar skoðunar að í stjórnarskrá
lýðveldisins verði skýrt kveðið áum að fiskistofnar við landið séu
sameign þjóðarinnar. Um þetta er þverpólitísk niðurstaða allra flokka á
Alþingi og fullt samkomulag allra hagsmunaaðila í sjávarútvegi – nema
LÍÚ. Sjónarmið þeirra sem hafa haldið því fram að fiskurinn í sjónum sé
eign annarra hefur því beðið fullkomið skipbrot.
Í öðru lagi er það
samhljóða niðurstaða starfshópsins, að undanskildum fulltrúa
Hreyfingarinnar, að eigandi auðlindarinnar (þjóðin) geti gert tímabundna
afnota- eða nýtingasamninga við þá sem vilja stunda fiskveiðar gegn
gjaldi og tilteknum öðrum skilyrðum. Með þessum hætti er verið að fara
álíka leið og farið er með aðrar sameiginlegar auðlindir, þ.e.
eignarhaldið sé skýrt og samningar séu gerðir um afnot.
Í þriðja lagi
er starfshópurinn samhljóða um að aflaheimildum skuli skipt upp í tvo
potta. Annar potturinn verði til ráðstöfunar innan aflamarkskerfisins
gegn samningum um afnot en hinn ætlaður til atvinnu- og byggðatengdra
aðgerða. Hlutfall þessara tveggja potta verði lögbundið þannig að báðir
stækki eða minnki eftir því hvort útgefnar heimildir aukist eða dragist
saman hverju sinni.
Í fjórða lagi gerir starfshópurinn ítarlega grein
fyrir þeim álitaefnum sem uppi hafa verið í sjávarútvegi á síðustu árum
og gerir tillögur til úrbóta í þeim efnum. Í því sambandi má nefna að
takmarka verði hve stórt hlutfall veiðiheimilda megi vera á einni hendi
og kanna þurfi innbyrðistengsl fyrirtækja í sjávarútvegi með það í huga.
Starfshópurinn leggur áherslu á að aflahlutdeildir eða tryggur aðgangur
að aflaheimildum þurfi upp að vissu marki að vera tengdur við byggðir
til atvinnusköpunar. Starfshópurinn er sammála um að heimild til
framsals aflamarks þurfi að þrengja frá því sem nú gildir, afnema eða
eingöngu heimila skipti á aflaheimildum. Ef framsal verði leyft fari það
fram með opinberum hætti þannig að aðgangur allar að heimildum verði
jafn.
Hér er skiljanlega aðeins drepið á örfáum atriðum í skýrslu
starfshópsins sem er bæði yfirgripsmikil og fróðlega aflestar.
Aðalatriðið
er að breið samstaða hefur náðst um nýja hugmyndafræði við stjórn
fiskveiða og sjónarmiðum þeirra sem farið hafa með þau mál á hinum
pólitíska vettvangi undanfarna tvo áratugi, hefur verið vísað frá.
Það
er trú mín að tillögur starfshópsins verði til að móta nýtt upphaf við
stjórn fiskveiða hér á landi. Tillögur hópsins er að mínu mati vel
rökstuddar, byggðar á haldgóðum upplýsingum og til þess fallnar að ná
sátt hjá þjóðinni um þessa mikilvægu atvinnugrein og leiða til lykta þau
deilumál sem uppi hafa verið í greininni. Á grundvelli vinnu
starfshópsins og þeirra valkosta sem hann bendir á mun ráðherra síðan
ákvarða ferkari tilhögun við endurskoðun fiskveiðilöggjafarinnar.
Hér
má nálgast skýrslu starfshópsins.
Athugasemdir