Sumarið er brostið á með glampandi sól og næstum því kæfandi hita
sksiglo.is | Rebel | 15.06.2015 | 11:14 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 605 | Athugasemdir ( )
Sumarið er svo sannarlega brostið á með fullum þunga.
Bæjarvinnufólk gerir bæinn svona líka ljómandi fínan, skemmtiferðaskip og mikið líf við höfnina, ferðamenn um allan bæ. Tjöld, húsbílar og allskonar á malar-tjaldsvæðinu í miðbænum og Bjössi smiður og Beggi Árna faðma hvorn annan á sólpallinum við litla húsið á Lindargötunni.
Ég held meira að segja að ég hafi heyrt einhvern segja "það er bara að verða of heitt hérna".
Allavega er þetta ljómandi gott akkúrat eins og þetta er núna, þennan mánudag til mæðu, 15 júní. 2015
Athugasemdir