Breytt sjálfsmynd Íslendinga
http://herdis.blog.is/blog/herdis/ | Rebel | 09.10.2008 | 23:19 | Robert | Lestrar 486 | Athugasemdir ( )
Já blessuð krónulufsan eins og Edda Rós kallar íslensku krónuna. Mikið rétt hjá henni að verkefnið er að reyna starta krónunni, en stóra spurningin er hvar við fáum kaplana og rafmagnið sem þarf. Er mjög sátt við nýfenginn stuðning Póllands, en jafn svekkt yfir framkomu stórra "vina"þjóða í IMF málinu, en það verður ekki liðið eins og Geir sagði í gær.
En það sem ég er að velta fyrir mér í dag er breytt ímynd okkar Íslendinga, sjálfsmynd lítillar þjóðar.
Hér hafa nokkrir Íslendingar þotið um heiminn, eins og hann sé í eigu þeirra sjálfra, fjárfest og sumir hafa komið eigum sínum fyrir í "fríríkjum", en það hefur verið mikið til umræðu að undanförnu og ætla ég ekki að fara meira út í það. En við "litlu mennirnir" höfum líka farið um heiminn og verið bara nokkuð sátt við þessa ímynd frumkvöðla, víkinga sem geta allt, vita allt og (sumir) eiga allt. Danir og allir hinir sem hafa verið að hnýta velgengni okkar manna hafa bara öfundað okkur! En hvað svo? Nú bankakerfið hrundi og velgengni sumra einstaklinga með, en alls ekki allra fyrirtækja. Enn eigum við Össur og fleiri frumkvöðlafyrirtæki sem ganga vel. Það er vissulega erfitt að reka fyrirtæki í dag, en það mun breytast, þetta vitum við. En það er núið sem verið er að berjast við og erfitt að horfa bjartsýnn til framtíðar þegar óvissan er svona mikil.
En nú fer litli Íslendingurinn til útlanda, getur ekki farið út að borða án þess að borga fyrirfram, er vantreyst og fólk er lítillækkað, við erum lengur frumkvöðlar og hetjur. Ekki má gleyma í þessu sambandi þeim sem verst fóru með okkur, Bretum sem beittu hryðjuverkalögum á okkur, ekki bara bankaviðskiptin, heldur á íslenska þjóð. Þessu geymum við ekki.
Það verður að segjast að þetta er svolítið skrítið fyrir litla Íslendinginn, sem situr með vandann í fanginu. Lánin sem hækka og éta upp eigurnar. Daglega heyri ég af fólki sem ég þekki, sem er hætt að borga af íbúðum og bílum og bíður eftir gjaldþroti. Fólk sem er að skilja og annað tekur á sig gjaldþrot svo hægt sé að halda saman fjölskyldunni á annarri kennitölu.
Já svona er Ísland í dag.
Athugasemdir