Ganga um suðureggjar Siglufjarðarfjalla
sksiglo.is | Viðburðir | 09.08.2014 | 09:00 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 540 | Athugasemdir ( )
Suðureggjar Siglufjarðarfjalla. Þrír skór.
9. ágúst, kl. 9 frá Skarðdalsviki, efstu beygju á Siglufjarðarskarðsvegi að austanverðu.
Verð: 2.000.
Gengið er suðaustur og fjallatoppar þræddir inn á Almenningshnakka, hæstan siglfirskra fjalla. Komið niður Hólsskarð og gengið út
Hólsdalinn.
Brött og klettótt leið, með lausum skriðum og háum eggjum. Ekki fyrir lofthrædda en stórfenglegt útsýni til allra átta.
Ferðafélag Siglufjarðar stendur fyrir skipulögðum gönguferðum í sumar. Fyrsta ferðin verður miðvikudaginn 28. maí en þá verður boðið upp á fuglaskoðunarferð í Héðinsfirði.
Síðan verður sólstöðuganga 20. júní. Gengið á Hvanneyrarhyrnu 5. júlí. Út á Siglunes 19. júlí.
Listaganga um Siglufjörð verður 30. júlí og síðan gengið á Hólshyrnuna 2. ágúst. Gönguferðir sumarsins enda svo um
suðureggjar Siglufjarðarfjalla þann 9. ágúst.
Athugasemdir