Siglingakeppnin Midnight Sun Race - 20. júní

Siglingakeppnin Midnight Sun Race - 20. júní Nú er aðeins rúm vika í hina nýju alþjóðlegu siglingakeppni Midnight Sun Race á Siglufirði sem verður haldin

Fréttir

Siglingakeppnin Midnight Sun Race - 20. júní

Nú er aðeins rúm vika í hina nýju alþjóðlegu siglingakeppni Midnight Sun Race á Siglufirði sem verður haldin í fyrsta skipti á Jónsmessunni þann 20. júní n.k. Fimm skútur, erlendar og innlendar, í þremur flokkum eru skráðar til keppni. Áhafnir þeirra er misstórar en búist er við að keppendur verði á milli 20 og 30. Keppendur verða ræstir kl: 18:00 á laugardag. Siglt verður umhverfis Grímsey og til baka til Siglufjarðar. Keppendur sigla því yfir Norðurheimsskautsbaug og fá vottorð uppá það. Áætlað er að keppendur verði komnir í mark fyrripartinn á sunnudaginn 21. júní. Mikil undirbúningsvinna liggur að baki keppninni, sérstaklega hvað varðar kynningu erlendis. Sigmar B. Hauksson hefur unnið að skipulagningu og kynningu keppninnar erlendis og væntir hann þess að keppnin verði eftirsótt í framtíðinni enda ein sinnar tegundar á svæðinu. Keppnin hefur þegar fengið umfjöllun í erlendum siglingablöðum og von er á erlendum blaðamönnum til að fylgjast með keppninni í ár. Stefnt er að því að keppni þessi verði árlegur viðburður sem vaxi með hverju árinu og auki ferðamannastrauminn til Fjallabyggðar. Auk þess hefur verið unnið markvist að því síðastliðin tvö ár að kynna fyrir skútueigendum aðstöðu til vetrarlegu sem er til staðar á Siglufirði og þá þekkingu og þjónustu sem er á staðnum til viðgerðar og viðhalds á skútum. Hægt er að fá nánari upplýsingar um keppnina á heimasíðu hennar, tengill HÉR

Athugasemdir

20.apríl 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst