Tónleikar - Pálmi Sigurhjartar og Siggi Björns
Skemmtilegir tónleikar verða á Kaffi Rauðku fimmtudaginn 29.maí þar sem tónlistamennirnir Pálmi Sigurhjartar og Siggi Björns stíga á svið á ferð sinni um landið.
Pálmi Sigurhjartar er landanum vel kunnugur og lék með hljómsveitum á borð við Sniglabandið, Cuba Libra og Centaur. Í gegnum tíðina hefur Pálmi komið að gerð fjölda hljómplata hvort sem er við hljóðfæraleik eða útsetningu.
Á ferli sínum hefur Siggi Björns gefið út fjólda hljómplatna og spilað í öllum heimsálfum nema á suðurskautinu. Allt síðan að Bubbi hjálpaði honum af stað hefur Siggi því verið á miklu flakki en þó lengst af verið í Danmörku.
Hér eru tvö skemmtileg tóndæmi eftir þá félaga.
Lagið Tvær dúfur
Lagið Tveir vinir
Athugasemdir