Opið bréf.. Til Markaðs- og menningarnefndar Fjallabyggðar

Opið bréf.. Til Markaðs- og menningarnefndar Fjallabyggðar Steingrímur Kristinsson birtir á Ljósmynda og sögu síðu sinni opið bréf til Markaðs- og

Fréttir

Opið bréf.. Til Markaðs- og menningarnefndar Fjallabyggðar

Hvanneyrarskál Mynd: Steingrímur Kristinsson
Hvanneyrarskál Mynd: Steingrímur Kristinsson

Steingrímur Kristinsson birtir á Ljósmynda og sögu síðu sinni opið bréf til Markaðs- og menningarmálanefndar Fjallabyggðar.

Þar leggur Steingrímur fram margar góðar hugmyndir um skemmtilega göngutúra og annað fyrir túrista og bæjarbúa.

Sjá hugmyndir Steingríms hér: Ljósmynda og sögu síðan

Fréttaritari Sigló.is getur glatt Steingrím með því að hafa upplýsingar um að hugmynd 1, 4 og 5 er búið að ýta úr vör svo að segja.

En sumt er tengt undirbúningsvinnu varðandi stofnun Ferða og frístundaþjónustu Fjallabyggðar. (FFF)

Það verkefni er hluti af hugmyndasamkeppninni RÆSING sem er samvinnuverkefni bæjarfélags Fjallabyggðar, fyrirtækja í Fjallabyggð og Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.

Hugmynd FFF, Ferða og frístundaþjónusta fjallabyggðar var 1 af 5 verkefnum sem var valið sem framtíðar hugmynd sem vert var að vinna meira í samvinnu við bæjarfélagið og fleiri aðila í ferðabransanum.

Texti: NB

Mynd: Steingrímur Kristinsson


Athugasemdir

23.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst