Aðalbúðarbakarí!
Frétt siglo.is "Gleðifrétt" um stækkun Aðalbakarísins vakti mikla athygli og gleði hjá bæjarbúum og fl.
Þeir Kára og Lóu synir lofuðu að opna "fljótlega" og þeir virðast ætla að standa við það.
Ég kíkti inn í bókstaflegri merkingu, því bannað var að ganga á hinu "fljótandi" nýlagða gólfi.
Mörgum hlakkar til opnunarinnar, því oft er þröngt í bakaríinu þessa sumardaga en það er alltaf skemmtilegt að koma þangað og spjalla yfir kaffibolla og nýbökuðum kökum og brauði.
Tók nokkrar myndir til að sýna ykkur.
Fljótandi gólf, check, gat á milli húsa, check..........
Allir milliveggir klárir....
Myndir og texti:
NB
Athugasemdir