Aðalbarinn

Aðalbarinn Ég sá þennan skemmtilega pistil og myndir hjá Leó Óla fyrir stuttu síðan. Eins og margir Siglfirðingar vita er Aðalgata 28 að mestum hlut í

Fréttir

Aðalbarinn

Ég sá þennan skemmtilega pistil og myndir hjá Leó Óla fyrir stuttu síðan.
 
Eins og margir Siglfirðingar vita er Aðalgata 28 að mestum hlut í eigu Leós og hefur Leó unnið að endurbótum á húsinu undanfarið.
 
En sjáum hvað Leó hefur að segja um myndirnar sem fylgja greininni.
 

899. Ég fékk þessa stórskemmtilegu vetrarmynd af Aðalgötu 28 senda frá honum Hilmari Gunnarssyni sveitunga mínum, en hann hefur undanfarið verið að láta skanna fjölda slidesmynda sem faðir hans Gunnar Þórðarson símvirki tók á árabilinu 1964-68.

Eitt og annað vekur þarna athygli mína, t.d. að tónskólalóðin var vandlega girt og með pílárahliði. Ég man aftur eftir girðingunni sem var annars löngu gleymd og horfin langt inn í lágþokubakka fortíðarinnar þegar ég sá myndina.

Til hægri sést í gaflinn á Aðalgötu 25. sem eitt sinn hýsti verslun Péturs Björnssonar. Hver ætli hafi átt heima þar á efri hæðinni þegar myndin var tekin? Kannski Stebbi lögga? Og ætli Þóra (fædd 1956) hafi þá átt reiðhjólið sem sést neðst í horninu?

Það verkur líka athygli mina að Schiöth-húsið virðist vera nýmálað og er ákaflega vel útlítandi, en þegar ég eignaðist það (um áramótin 1980-81) hafði neðri hæðin nýlega verið máluð með skelfilega grænum lit, en að öðru leyti var málningin mestöll flögnuð af. Litlu kvistirnir voru rauðir, - alveg rétt. Og skorsteinninn gægist yfir mæninn, en hann var brotinn niður árið 1996 m.a. af Óla Kára og fleirum þegar norðurþekjan var endurnýjuð, en hann var þá í læri Sigga Konn.

Takið eftir að á jarðhæðinni lengst til hægri og næst Aðalbúðinni er hurð þar sem nú er gluggi. Þarna var inngangur sem m.a. var ætlaður vinnu og afgreiðslufólkinu sem bjó uppi í kvistunum, en talsvert mjórri stigar lágu alla leið þangað upp en þeir sem lágu frá núverandi inngangi næst Allanum og ætlaðir voru apótekaranum og fjölskyldu hans.

Fyrir ofan dyrnar þar sem nú er gengið inn í bakaríið hjá Kobba stendur AÐALBAR. Þegar ég var á barnaskólaárunum var staðurinn yfirleitt kallaður Sjuttabarinn og þótti ekki henta öllum aldurshópum til að hanga á. En það var nú samt stundum laumast til að kíkja þangað.


leó


Þegar rýnt er betur í myndina sést að ungur maður gægist út um stofugluggann, innan úr hlýjunni, öryggi heimilisins, virkinu þar sem hann á athvarf sitt, út í hríðina, veturinn og kuldann þar sem frostið bítur.

Hver skyldi þetta vera?

 

Skrifað af LRÓ.


Athugasemdir

23.desember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst