Arnar Ómarsson opnar einkasýninguna Forritað Ástand í Danmörku.
sksiglo.is | Afþreying | 20.05.2014 | 15:30 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 414 | Athugasemdir ( )
Sýningin markar ákveðin þáttaskil í verkefninu Notendur sem Arnar hefur unnið að rúmt
síðastliðið ár. Verkefnið inniheldur m.a. sýningar í Halle50 og Firstlines Gallery í München, Alþýðuhúsinu á Siglufirði, Weekends Gallery
í London, DAK og loks í Godsbanen í Danmörku þar sem Forritað Ástand - Forrit eru líka fólk, fólk! opnar á
föstudaginn.
Verkefnið fjallar um eðli tölvuhugsunar og varpar fram frumspekilegum spurningum um sköpun og greind. Verkin
á sýningunni eiga öll það sameiginlegt að ávarpa þann grundvöll þar sem forritum mistekst að tileinka sér mannlega
samskiptahætti, hvort sem það er í myndmáli, tjáningu eða textasmíð. Einlægur bragur yfir verkunum lætur áhorfandan finna til
samkenndar, en nálgunin manngerir forritin. Arnar kemur fram við forritin líkt og minnihlutahóp sem verður fyrir aðkasti og fordómum. Verkefnið
er styrkt af Myndlistarsjóð.
Frekari upplýsingar um Notendur er að finna á usershandbook.com.
Arnar Ómarsson útskrifaðist frá UAL Listaháskólanum í London 2011 með fyrstu einkunn og hefur dvalið í Danmörku síðan. Arnar starfar á Institut
for (X), menningarmiðstöð í gamalli lestastöð í Árósum þar sem hann hefur vinnustofu en rekur einnig gestalistamannadvöl, vikulega
fyrirlestraröð og sér um alþjóðatengsl hópsins. Verkefnið Reitir á Siglufirði er einnig í stjórn Arnars hvert sumar ásamt
Ara Marteinssyni, samstarfsmanni hans til margra ára og er Arnar stofnmeðlimur í Verksmiðjunni á Hjalteyri.
Frekari upplýsingar um Arnar er að finna
á arnaromarsson.com
Athugasemdir