Danni P. Súperstar
sksiglo.is | Afþreying | 25.06.2013 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 738 | Athugasemdir ( )
Eins og alþjóð á Siglufirði og Ólafsfirði vita fór Leikfélag Fjallabyggðar í Þjóðleikhúsið á dögunum og sýndi Stöngin inn við alveg hreint magnaðar undirtektir og fengu mikið lof fyrir.
Margir Siglfirðingar vita, hvort sem þeir vilja vita það eða ekki að sjálfur Daníel Pétur fór þar á kostum eins og allir
aðrir í sýningunni.
Eftir þessa tilteknu sýningu er eins og Daníel hafi þroskast á allan hátt sem mjög frægur leikari, jafnvel ofurstjarna utan
leiksviðsins.
Hann hefur víst tekið Brad Pitt og Tom Cruse sér til fyrirmyndar og gefur víst aldrei minna en cirka 100 þúsund kall í þjórfé og
dansar upp í sófum í viðtalsþáttum .
Einnig finnst honum orðið erfitt að þola það hversu margir hafa verið að reyna að ná myndum af honum að undanförnu.
Ég lá nú samt í leyni og náði þessum kastaníu brúnhærða ofurleikara á myndavélaminniskortið hjá
mér þar sem hann var að ganga og skoða í gluggann hjá snyrtistofunni hennar Hönnu Siggu.
Athugasemdir