Dansinn dunaði í skóginum

Dansinn dunaði í skóginum Föstudaginn 14. ágúst var haldið upp á 75 ára afmæli Skógræktarfélags Siglufjarðar. Við það tilefni var skógurinn formlega

Fréttir

Dansinn dunaði í skóginum

Klippt á borðann
Klippt á borðann

Föstudaginn 14. ágúst var haldið upp á 75 ára afmæli Skógræktarfélags Siglufjarðar. Við það tilefni var skógurinn formlega gerður að opnum skógi.

Skógræktin á Siglufirði er yndisleg náttúruperla hvort sem er að vetri eða sumri. Hægt er að ganga um stíga og setjast niður við bekki víðsvegar um skóginn. Innst í skógræktinni má einnig finna Leyningsfoss, lítinn kröftugan foss sem ber einnig nafnið Kotafoss og úr honum rennur Leyningsá. 

Markmiðið með verkefninu "Opinn skógur" er að opna skógræktarsvæði við alfaraleiðir, sem eru í umsjón skógræktarfélaga. Áhersla er lögð á að aðstaða og aðgengi verði til fyrirmyndar og á að miðla upplýsingum og fræðslu um lífríki, náttúru og sögu, svo að almenningur geti nýtt sér Opin skóg til áningar, útivistar og heilsubótar.

Beðið eftir athöfninni

Við þetta tilefni mætti fjöldi heimamanna og félagar úr Skógræktarfélagi Íslands sem hélt aðalfund sinn á Akureyri um helgina.

Hátíðarhöldin hófust þegar Kristrún Halldórsdóttir, formaður Skógræktarfélags Siglufjarðar bauð gesti velkomna. Síðan var Opinn skógur formlega opnaður þegar Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra, Páll Samúelsson og Elín Jóhannesdóttir klipptu á borðann. Hélt þá mannfjöldinn í Árhvamm þar sem haldnar voru hátíðarræður af þeim Magnúsi Gunnarssyni, formanni Skógræktarfélags Íslands, Gunnari I. Birgissyni bæjarstjóra, Sigrúnu Magnúsdóttur umhverfisráðherra. Kristrún Halldórsdóttir formaður Skógræktarfélags Siglufjarðar stýrði athöfninni með glæsibrag.

Mannfjöldinn á leið í Árhvamm

Páll Helgason fór síðan með ljóð sitt sem hann orti til afmælisskógarins sem er aðeins ári eldri en hann, Heldrimenn spiluðu undir eins og þeim einum er lagið, síldarstúlkur komu í heimsókn og spiluð þeir Sigurður Hlöðversson og Þorsteinn Sveinson á trompet lagið Siglufjörður  svo undir tók í skóginum.

Mikil ánægja og gleði ríkti meðal veislugesta á öllum aldri og var vel tekið til matar síns á veisluborðinu frá Kobba bakara og starfsfólki enda svignaði borðið undan kræsingunum.

Tvær með græna fingur. Ásdís Magnea Gunnlaugsdóttir, fyrrverandi formaður Siglufjarðardeildar Garðyrkjufélags Íslands og Kristrún Halldórsdóttir, formaður Skógræktarfélags Siglufjarðar

Siglfirðingar geta svo sannarlega verið stoltir af þessari 75 ára náttúruperlu og hugsað með hlýju og þaklæti til hugsjónarmannsins, Jóhanns Þorvaldsonar sem var upphafsmaðurinn að þessum sælureit og því óeigingjarna starfi sem hann og síðan þeir sem við starfinu tóku hafa unnið undanfarna áratugi.

Þar sem myndefni var óþrjótandi læt ég fylgja með fremur margar myndir og vona að lesendur hafi gaman að.

Örlygur Kristfinnsson mætti að sjálfsögðu þótt lemstraður væri eftir að hafa lagst á sveif með gömlum Willis

Staldrað við í lundinum og skrifað í gestabókina

Heldrimenn spiluðu svo undir tók í skóginum á meðan aðrir tóku myndir af sér og sínum

Kristrún Halldórsdóttir, formaður Skógræktarfélags Siglufjarðar

Þeir sómamenn. Sigurður Hafliðason og Bjarni Þorgeirsson ánægðir með daginn

Gestirnir komu víðsvegar að. Hér má sjá þau hjón, Ásu Baldursdóttur og Svein Hálfdánarson frá Borganesi

Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri í Fjallabyggð 

Börn að leik

Sigurður Hlöðversson og Þorsteinn Sveinson að spila lagið Siglufjörður eftir Bjarka Árnason

Dansað af hjartans innlifun

Skýr skilaboð frá Erlu Svanbergsdóttur

Veisluborðið svignaði undan gómsætum kræsingum úr Aðal Bakarí

Páll Helgason fór með frumsamið ljóð

Það fannst meira að segja blómálfur að nafni Hrólfur Baldursson í skóginum

Mannfjöldinn í Árhvammi

Kristján L. Möller var auðvitað mættur með myndavélina

Fagnaðarfundir voru með heimafólki og brottfluttum Siglfirðingum. Hér má sjá þær Lenu Möller, Rannveigu Pálsdóttir, Halldóru Pétursdóttir og Kristínu Baldursdóttir

Að sjálfsögðu vann Guðbjörg Friðriksdóttir þennan fallega Purpurabrodd í happadrættinu sem dregið var út meðal veislugesta

Jón Dýrfjörð tók ræðuhöldin upp á vídeo

Það sannast á þessum tveim að hollusta og hreyfing auka lífsgæðin. Þórarinn Hannesson og okkar ástkæra Regína Guðlaugsdóttir hafa í gegnum árin kennt okkur leikfimi og holla lífshætti og hafi þau þakkir fyrir. Það má geta þess að hin síunga Regína er mun eldri en skógurinn eða 87 ára gömul 

Myndir: Kristín Sigurjónsdóttir
Texti: Kristín Sigurjónsdóttir 


Athugasemdir

23.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst