Bærinn að fyllast
Síldarævintýrið 2014 er hafið á fögrum ágústdegi. Fjöldi manns er í bænum og óteljandi dagskráliðir og uppákomur fyrir bæði fullorðna og börn.
Er þetta í 24. sinn sem blásið er til risaveislu hér á Siglufirði og taka heimamenn fagnandi á móti ættingjum, vinum og öllum þeim sem fagna með okkur. Síldarævintýri 2014. Dagskrá 1. - 4. ágúst.
Sérstaklega ánægjulegt var að Aðalbakarí opnaði nýtt rými í dag (gamla Aðalbúðin) þar sem er hið glæsilegasta bakarí, kaffihús og veitingastaður. Virkilega skemmtileg viðbót við alla þá þjónustuflóru sem bærinn hefur upp á að bjóða.
Birgir Mar Guðfinnson, formaður Sjómanna og Vélstjórafélags Grindavíkur
er að sjálfsögðu mættur.
Einnig var opnuð málverkasýning Atla Tómassonar í Bláa húsinu (Rauðku) í dag og verður hún opin um helgina frá 15:00-17:30. Öll verk á sýningunni eru til sölu.
Áhugaveð málverk Atla Tómassonar. Sýning í Blá húsinu (Rauðku)
Nú ætla veðurguðirnir að vera okkur hliðhollir í ár og spáir góðu verði sem gerir gott betra. Það ætti að fara vel um alla í bænum þar sem fjöldi veitingahúsa hefur komið upp aðstöðu utanhúss svo gestirnir geti notið góða veðursins.
Veitingar, fagurt útsýni og ljúft mannlíf við Torgið
Stórglæsilegt Aðalbakarí
Fallega hannað Aðalbakarí í húsi með sál og skemmtilega sögu
Látið fara vel um sig fyrir framan Allann
Kristján Sigurðsson kom frá Bandaríkjunum til að njóta helgarinnar með okkur
Hamingjustund á Siglunesi Guesthouse
Tjaldstæðið í miðbænum óðum að fyllast ásamt öðrum grænum blettum hingað og
þangað í bænum
Nú tekur við fjölbreytt kvöldskemmtun og gleði alla helgina.
Góða skemmtun.
Myndir og texti: Kristín Sigurjónsdóttir
Athugasemdir