Hæ hó jibbý jei það er kominn 17. júní og hálft ár enn í jól!!

Hæ hó jibbý jei það er kominn 17. júní og hálft ár enn í jól!! Siglo.is óskar lesendum nær og fjærsveitungum og já bara öllum landsmönnum til sjávar,

Fréttir

Hæ hó jibbý jei það er kominn 17. júní og hálft ár enn í jól!!

Hæ hó jibbý jei það er kominn 17. júní og hálft ár enn í jól!! 

 
Siglo.is óskar lesendum nær og fjærsveitungum og já bara öllum landsmönnum til sjávar, sveita og innsveita innilega til hamingju með Þjóðhátíðardag Íslendinga. 
Eins og örugglega margir vita var Lýðveldið Ísland stofnað 17. júní 1944 á afmælisdegi Jóns Sigurðssonar forseta og akkúrat þess vegna erum við sem þjóð orðin tveimur árum eldri en löglegur eldri borgari sem er ekki á 90 ára reglunni. Innilega til hamingju með það kæri lesandi.
 
Einhverjar misvitrar ræðurnar verða örugglega lesnar upp og vitnað verður í löngu dauða karla og kérlingar sem flest allir líta upp til. Fjallkonan verður líklega á fleygiferð og mun örugglega príla upp á pall hingað og þangað um landið og lesa hugljúf og hressandi ljóð eins og henni einni er lagið. Fokdýrir skemmtikraftar að sunnan þvælast hingað og þangað um landið eins og síldarverkamennirnir og konurnar forðum og pylsur, candy floss, blöðrur og allskonar kruðerí og tertur verða líklega einhversstaðar á boðstólnum.
 
 Vonandi verður hátíðisdagurinn alveg hreint frábær hjá ykkur með alls konar skemmtun, blöðrum og fjöri.
 
Gleðilega Þjóðhátíð. 
 
Svo svona til að koma þér í þjóðhátíðarstuð geturðu hlustað á þetta á meðan þú lest eða lest ekki þennan pistil.
 

Athugasemdir

13.janúar 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst