KF orðið fyrirmyndarfélag ÍSÍ
Íþróttahreyfingin gerir kröfur til
samfélagsins um stuðning, bæði aðgang að mannvirkjum og beinan fjárstuðning. Íþróttahreyfingin vill að litið sé á
þennan stuðning sem endurgjald fyrir þjónustu sem hún veitir öllum þegnum samfélagsins. Til þess að slíkar kröfur séu
trúverðugar og réttlætanlegar þarf íþróttahreyfingin að sýna það í verki að hún geri raunhæfar
kröfur til sjálfrar sín hvað varðar gæði og innihald þess starfs sem hún vinnur. Þetta hefur hún gert með samþykkt
stefnuyfirlýsinga um afmarkaða málaflokka, þar sem fram kemur að hvernig starfi sé stefnt. Slíkar stefnuyfirlýsingar hafa m.a. verið
samþykktar um barna- og unglingastarf, menntun þjálfara og forvarnastarf.
Með því að taka upp gæðaviðurkenningu fyrir íþróttastarf geta
íþróttafélög eða deildir látið gera úttekt á starfsemi sinni eða hluta hennar miðað við þær
gæðakröfur sem íþróttahreyfingin gerir. Standist þau þessar kröfur fá þau viðurkenningu á því frá
ÍSÍ og geta kallað sig Fyrirmyndarfélag eða Fyrirmyndardeild.
Stjórn KF hefur í vetur unnið hörðum höndum að því að uppfylla
kröfur ÍSÍ um að gerast Fyrirmyndarfélag. Á laugardaginn mætti Viðar Sigurjónsson, skrifstofustjóri ÍSÍ á
Ólafsfjarðavöll og afhenti Þorvaldi Sveini og Dagný Finns viðurkenningu þess efnis að KF væri orðið Fyrirmydarfélag ÍSÍ,
fyrst allra í Fjallabyggð. Þetta er mikil viðurkenning og mun án efa efla félagið enn frekar. Handbók KF má finna á
heimasíðu félagsins kfbolti.is.
Athugasemdir