Málað hingað og þangað um bæinn.
sksiglo.is | Afþreying | 11.06.2013 | 06:00 | Jón Hrólfur Baldursson | Lestrar 652 | Athugasemdir ( )
Doddi , Mark og félagar mála bæinn bæði
rauðan,grán,ljósbláan og bara eiginlega alveg hreint allavega.
Ægir Eðvarðs fékk að rífa í pensilinn hjá þeim og
stóð sig víst með stakri príði þó lofthræðsla hafi gert töluvert vart við sig strax í öðru þrepi í
stiganum.
Slátturlið bæjarins málar svo götumerkingar í gríð og erg
áður en formleg slátturtíð hefst með viðeigandi vélarhljóðum. Þá finnst mér eiginlega sumarið komið, þegar
maður fer að heyra í slátturvélum og slátturorfum.
Hótel Siglunes.
Hálfdán var að passa upp á að Mark færi sér ekki að
voða.
Hann kann þetta kallinn. Það er líka gaman að segja frá því
að hann Mark er töluvert
eldri en hann lýtur út fyrir að vera.
Þarna er Ægir að peppa sig upp í að fara upp stigann.
Þarna fraus hann eitt augnablik. (cirka hálftíma)
Og svo loksins þegar hann komst upp málaði hann alveg eins og vindurinn.
Hörku flott lið að mála.
Athugasemdir