Mugison á Kaffi Rauðku í kvöld
sksiglo.is | Afþreying | 23.10.2014 | 09:00 | María Petra Björnsdóttir | Lestrar 344 | Athugasemdir ( )
Mugison er farinn að koma aftur fram undir eigin nafni eftir að hafa starfað með Dröngum og Áhöfninni á Húna seinustu ár. Hann er nú á hljómleikaferð um landið og kemur við á Kaffi Rauðku í kvöld, fimmtudaginn 23. október. Á tónleikunum mun hann flytja nýtt efni í bland við eldra. Bandið hans skipa Arnar Þór Gíslason á trommum, Guðni Finnsson á bassa og Þorbjörn Sigurðsson á hljómborð. Tónleikarnir hefjast kl 21:00.
Athugasemdir