Stórkostlegt listaverk afhjúpað laugard 8. júlí, kl.13.00 Allir velkomnir
sksiglo.is | Söfn og sýningar | 07.07.2017 | 13:05 | Jón Ólafur Björgvinsson | Lestrar 592 | Athugasemdir ( )
Laugardaginn 8. júlí kl 13.00 munu Erla og Þórir, eigendur Herring House afhjúpa listaverk á lóð sinni við Hlíðarveg 1.
Um er að ræða einstakt verk á einstökum stað, sjón er sögu ríkari.
Aðalheiður Sigríður Eysteinsdóttir
listamaður mun segja nokkur orð um verkið og síðan mun
Guðrún Ösp Sævarsdóttir
mezzósópran gleðja okkur með söng.
Veitingar og gleði í fallegu umhverfi.
Bæjarbúar, gestir þjóðlagahátíðar, vinir og vandamenn eru hjartanlega velkomnir.
Njótum saman og eigum góða stund.
Kveðja
Erla og Þórir
Athugasemdir