ÓKEYPIS ljósmyndastofa fyrir alla
Komdu með þig sjálfan þig eða alla þína og láttu taka flottar myndir af þér/ykkur.
Í dag (3 júlí) og á morgun (4 júlí) er rekinn ókeypis ljósmyndastofa í "Gömlu Höllusjoppunni" á Aðalgötunni. Frá kl: 11.00 til 18.00.
Ljósmyndarinn sendir ykkur síðan myndirnar á netfang ykkar gegn því að fá að nota 1-2 myndir á heimasíðuna SigloFoto sem er hluti af verkefninu Reitir 2015.
Á ljósmyndastofunni er gamalt leikmyndatjald frá ljósmyndastofu sem var hér í bæ í denn notað sem bakgrunnur.
Sjá myndir hér fyrir neðan.
Ljósmyndarinn frá Ísrael og Nick verðandi tengdasonur Jóhanns Sigurjóns (Jóa Budda), Kristín Sigurjónsdóttir, Ásdís Gunnlaugsdóttir og Kristin (Stína) dóttir Jóhanns og ömmubarn Ásdísar.
Leikmyndatjaldið gamla
Ljósmyndarinn Ronit Porat frá Ísrael
Myndir og Texti: NB
Athugasemdir