Á vit síldarinnar - Sýning í Herhúsinu
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 27.08.2009 | 17:02 | Síldarminjasafnið | Lestrar 369 | Athugasemdir ( )
Bresku hjónin Dan og Trish hafa dvalið við vinnu sína í Herhúsinu síðustu fjórar vikur. Auglýsing um Herhúsið vakti athygli þeirra og ekki var saga Siglufjarðar síður ástæða fyrir því að þau völdu að koma hingað. Og líta þau svo á að þau hafi komið í nokkurs konar pílagrímsför til þess að kynna sér síldina og sérkenni staðarins. Trish er myndlistarkona og Dan tónlistarmaður. Þau hafa virkjað allmarga Siglfirðinga til að taka þátt í mynd- og tónsköpun sinni sem þau sýna og láta heyra á sýningunni í Herhúsinu á föstudag (28. ágúst) kl. 17:00.
Athugasemdir