Borgarafundurinn

Borgarafundurinn Mikil fjöldi fólks kom saman á borgarafundi sem haldin var til þess að sýna samstöðu með starfsmönnum Heilbrigðisstofnunar

Fréttir

Borgarafundurinn

Það var þéttsetið á fundinum
Það var þéttsetið á fundinum
Mikil fjöldi fólks kom saman á borgarafundi sem haldin var til þess að sýna samstöðu með starfsmönnum Heilbrigðisstofnunar Fjallabyggðar og mótmæla fyrirhuguðum niðurskurði.

Allinn var troðfullur, hvert sæti var skipað og greinilegt að fólk var komið til þess að styðja við bakið á starfsfólki HSF.

Nokkrir þingmenn kjördæmisins voru mættir og tóku til máls en kvöldið snérist um heilbrigðisstofnunina, fólkið sem þar vinnur og þá raunverulegu hættu sem vofir yfir samfélaginu.

Hér koma nokkrar myndir frá fundinum :


Starfsfólk HSF efndi til samstöðugöngu og héldu saman til fundarins. Skiltin sögðu allt sem segja þarf.



Helvítis fokking fokk lýsir þessu ágætlega.



Ingvar Erlingsson, forseti bæjarstjórnar Fjallabyggðar, stjórnaði fundinum fagmannlega.



,,Djöfulleg líðan". Kristín Úlfsdóttir lýsti ástandinu á HSF og líðan starfsmanna sem geta átt von á uppsagnarbréfi á næstunni.



Konráð Baldvinsson, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Fjallabyggðar, fór yfir stöðu mála.



Valþór Stefánsson, framkvæmdastjóri lækninga á Heilbrigðisstofnun Fjallabyggðar, fór yfir þau áhrif sem fyrihugaður niðurskurður myndi hafa á stofnunina og samfélagið sem við búum í.



Athugasemdir

27.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst