Gleði í snjónum í dag kl.15 !
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 04.12.2008 | 23:34 | Síldarminjasafnið | Lestrar 175 | Athugasemdir ( )
Bandarísk listakona, Bridget Batch sem dvelur í Herhúsinu biður Siglfirðinga á öllum aldri að vera "leikendur" í vídeóverki sem
hún er að vinna að og verður tekið upp við Háveg í dag, föstudag. Þátttakendur þurfa að vera hlýlega klæddir,
með húfu og vettlinga því að meiningin er að þeir velti sér niður brekku, ýmist einir, í litlum eða stórum hópum eftir
fyrirmælum listakonunnar. Bridget vonast til að sem flestir mæti kátir og hressir og taki þátt í þessu með henni. Verkið mun svo verða
sýnt á listsýningum víða um heim.
Áhugasamir leikendur eru beðnir um að mæta upp á Háveg, við húsið hennar Maddýjar. -ök
Áhugasamir leikendur eru beðnir um að mæta upp á Háveg, við húsið hennar Maddýjar. -ök
Athugasemdir