Gunnar Þórðarson, í kvöld klukkan 21:00 í Bátahúsinu
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 29.07.2010 | 07:00 | Finnur Yngvi Kristinsson | Lestrar 347 | Athugasemdir ( )
Búist er við mikilli aðsókn á tónleika Gunnars Þórðarsonar í bátahúsinu klukkan 21:00 í kvöld en forsala miða er nú hafin í þjónustumiðstöð Rauðku, bláa húsinu, við höfnina.
Gunnar Þórðarson er landsmönnum kunnur enda hefur hann leikið í hljómsveitum á borð við Hljóma, Trúbrot, Flowers og Ríó Tríó og er hann einn allrafærasti gítarleikari landsins.
Félagarnir heimsfrægu í Fílapenslunum standa að tónleikunum en þeir troða síðan sjálfir upp á stóra sviðinu á laugardag klukkan 15:30.
Athugasemdir