Handverkshátíðin við Hrafnagilsskóla 2011
Feykir.is | Norðlenskar fréttir | 09.02.2011 | 15:50 | Helga Sigurbjörnsdóttir | Lestrar 393 | Athugasemdir ( )
Handverkshátíðin við Hrafnagilsskóla verður haldin í 19. sinn dagana 5.-8. ágúst 2011. Umsóknarfrestur vegna þáttöku rennur út 1. maí n.k. Öllum sem vinna að handverki og hönnun er heimilt að sækja um þáttöku.
Sérstök valnefnd leggur mat á umsóknir og velur þátttakendur. Áhugi á handverki og hönnun er gríðarlegur og hefur fjöldi umsókna þegar borist.
Í fyrsta sinn í sögu hátíðarinnar verður hátíðin formlega kynnt á Norðurlöndunum, handverksfólki og hönnuðum til þáttöku.
Nánari upplýsingar má finna á www.handverkshatid.is
Athugasemdir