Héðinsfjarðargöng 6/9/2010

Héðinsfjarðargöng 6/9/2010 Ljósmyndari  vefsins skrapp inn í Héðinsfjarðargöng í dag til að fylgjast þar með gangi mála þar.

Fréttir

Héðinsfjarðargöng 6/9/2010

Malbikunarmeistarinn stjórnar verkinu
Malbikunarmeistarinn stjórnar verkinu
Ljósmyndari  vefsins skrapp inn í Héðinsfjarðargöng í dag til að fylgjast þar með gangi mála þar.

Allt er þar í góðum farvegi, malbikunarframkvæmdir farna að nálgast lokaáfanga.
Byrjað var fimmtudaginn 26. ágúst að malbika í þessum síðari áfanga, nýjan veg Ólafsfjarðarmegin, síðan var hafist handa við þar sem frá var horfið inni í göngunum Ólafsfjarðarmegin um það bil 4 km frá gangnamunnanum og haldið til Ólafsfjarðar hægt og sígandi, en lagt er í gangnagólfið þvert yfir með tveim malbikunarvélum.

Stuttu eftir hádegið er ljósmyndarinn mætti, voru að mati hans um 2,5 km.  eftir að munnanum (gróf áætlun). Það er fyrirtækið Hlaðbær sem sér um malbikunina.

Rafverktakinn Rafmenn er með fjölda manns við að setja upp ljósabúnaðinn í göngunum og fleira og að sjálfsögðu er starfsmenn Háfells á fullu við ýmsa vinnu við frágang og snyrtingu umhverfisins. Meðal annars, bæði í Ólafsfirði. Héðinsfirði og Siglufirði við að helluleggja útsýnisafdrep á stöðunum og fleira.

Áætlanir eru uppi um opnun ganganna um mánaðarmótin næstkomandi og sjálf opnunarvígslan er áætluð 2. október nk.
Ljósmyndir sem teknar voru í heimsókninni eru  HÉR á vefnum.

Einnig má sjá sömu myndir HÉR  á einkavef Ljósmyndarans. (Fuglar á Siglufirði)
 
Myndirnar hér eru örlítið móskulegar, þar sem malbikunargufa og útblástur vinnuvéla á staðnum var nokkur þrátt fyrir öfluga viftu sem var til staðar, en nánast logn var úti og enginn trekkur þess vegna. Og hér eru tvær klippur frá sama degi frá framkvæmdum við malbikið.
Klippa-1Klippa-2


Athugasemdir

27.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst