Horft til framtíðar
fjallabyggd.is | Norðlenskar fréttir | 24.05.2009 | 18:00 | | Lestrar 447 | Athugasemdir ( )
Um 40 manns mættu á íbúaþing sem haldið var í dag og ræddu málefni samfélagsins og sveitarfélagsins. Þótt þátttaka á íbúaþinginu hafi verið nokkuð undir væntingum voru umræðurnar frjóar og gagnlegar.
Starfsmenn Fjallabyggðar munu á næstu dögum vinna úr því mikla magni upplýsinga sem varð til á þinginu og niðurstöðurnar verða birtar hér á vefnum að því loknu. Tekið verður mið af niðurstöðum þingsins í ýmsum ákvörðunum sem teknar verða á næstunni og ætlunin er að nota upplýsingarnar í vinnu við mótun atvinnustefnu Fjallabyggðar o.fl.
Fjallabyggð þakkar þeim sem tóku þátt í þinginu í dag fyrir þeirra framlag.
Athugasemdir