Í sól og sumaryl
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 31.07.2010 | 18:59 | | Lestrar 844 | Athugasemdir ( )
Siglufjörður skartaði sínu fegursta í dag laugardag, glampandi sólskin og hiti þrátt fyrir að þokuslæða lokaði fjarðarmynninu.
Sunnan andvari hélt slæðunni þar kyrri svo hún angraði engan. Það var býsna mikið um að vera bæði á Torginu og á svæðinu við höfnina hjá Hannes Boy Café, og Harbor Café hjá Valgeir.
Það mátti vart sjá muninn á hvoru svæðinu var fjölmennara, á Torginu eða hafnarsvæðið milli klukkan 15:00 og 17:00 þegar myndirnar sem sjá má HÉR voru teknar, þær gefa nokkuð glögga mynd af fjölda fólks á svæðunum ofl.
Athugasemdir