Norðlensk tíðindi dagsins á N4.
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 09.02.2011 | 08:45 | Helga Sigurbjörnsdóttir | Lestrar 451 | Athugasemdir ( )
N4 Sjónvarp hefur undanfarin tvö ár fjallað um norðlenskt mannlíf alla virka daga í þætti sem ber nafnið
,, Að norðan ".
Að auki hafa verið sýndir þættirnir: 2 gestir, Fróðleiksmolinn, Helgarnir, Föstudagsþátturinn og sýndir hafa verið bæjarstjórnarfundir frá Akureyri, svo eitthvað sé nefnt.
Nú á að bæta við nýjung, alla mánudaga til fimmtudaga kl. 18:15 ætla þau Kristján Kristjánsson og Hilda Jana Gísladóttir að fjalla um og ræða norðlensk tíðindi líðandi stundar.
Þorvaldur Jónsson, framkvæmdastjóri N4 segir að með þessu vilji N4 efla þjónustu sína við áhorfendur ,, Við erum þakklát fyrir þau jákvæðu viðbrögð sem N4 Sjónvarp hefur fengið að undanförnu, áhorf á stöðina hefur margfaldast og rekstrargrundvöllur fyrir landsbyggðar sjónvarp er loks að verða að veruleika.
Við vonumst auðvitað til þess að þessi nýjunga verði einungis eitt skref í þeirri vegferð sem framundan er "
Ef þið viljið koma tíðindum á framfæri frá ykkar svæði á N4, ekki hika við að senda okkur póst á netfangið n4@n4.is
Athugasemdir