Skíðasvæðið Skarsdal á Siglufirði
Nú þegar haustið er komið kemur að því að skíðasvæðið í Skarðsdal opnar og er stefnt á að opna fyrstu daganna í nóvember og vera með opið til loka apríl á næsta ári.
Jarðvegsvinna stendur yfir á öllu svæðinu og er lokið við vinnu á Búngusvæði þar sem lyftusporið var lagfært og grjóthreinsun og á T-svæðinu var lyftuspor lagfært en jarðvegsvinna stendur nú yfir á Neðstasvæðinu og í framhaldinu verður unnið við uppsetningu á snjógirðingum og nú er vonandi að við þurfum ekki eins mikinn snjó til að starta svæðinu.
Valló ehf sem rekur skíðasvæðið í Skarsdal á Siglufirði hefur tekið þá ákvörðun að bjóða öllum grunnskólabörnum í 1 og 2 bekk frítt í lyftur í vetur og öðrum grunnskólabörnum í Fjallabyggð Vetrarkort á kr. 3.000.- og öllum framhaldsskólakrökkum í Menntaskóla Tröllaskaga og öðrum krökkum frá Fjallabyggð sem eru í framhaldsskólum Vetrarkort á kr. 5.000.-
Vetrarkort gilda frá opnun að hausti 2010 til vors 2011.
Rekstraaðili skíðasvæðisins gerir ráð fyrir því að mörg börn í Fjallabyggð nýti sér þetta tilboð og nýti svæðið sér til skemmtunar og yndisauka og að sjálfsögðu skíðafélögin bæði til æfinga og keppni á komandi vetri. Verður þá gaman að sjá þegar krakkar bæði úr austurbænum og vesturbænum koma í Skarðsdalinn. Til gamans má geta að skíðasvæðið í Skarðsdal var opið í 100 daga síðastliðinn vetur og gestir ríflega 10 þúsund, spennandi verður að sjá hvað Héðinsfjarðargöng gera fyrir svæðið en nú þegar hafa hópar boðað komu sína á komandi vetri.
Heimasíða svæðisins er: skard.fjallabyggd.is
Athugasemdir