Frétt frá 10 bekk. Mottu mars

Frétt frá 10 bekk. Mottu mars Eins og flestir vita er svokallaður mottu mars í gangi þennan mars mánuð. Skorað var á alla karlmenn að safna yfirvaraskeggi

Fréttir

Frétt frá 10 bekk. Mottu mars

Að mati 10. bekkjar skartar Birgir fegustu mottunni
Að mati 10. bekkjar skartar Birgir fegustu mottunni
Eins og flestir vita er svokallaður mottu mars í gangi þennan mars mánuð. Skorað var á alla karlmenn að safna yfirvaraskeggi í þeim tilgangi að fólk gæti heitið peningum á mottusöfnunina. Allur ágóði rennur til styrktar  krabbameinsfélagi Íslands.
Þegar maður röltir um götur Siglufjarðar er fljótt hægt að koma auga á gullfallegar hormottur sem siglfirskir karlmenn eru að safna. Mottumars lýkur með veglegri keppni þar sem fimm flottustu mottur landsins verða valdar.

Þessi keppni er á Stöð 2 í kvöld föstudaginn 26. mars klukkan 20:00 í beinni útsendingu.
Þar mæta fimm efstu Skeggjarnir og verður krýndur MOTTU-SKEGGJUR ársins 2010.
Laugardaginn 6. mars var sala á barmmerkjum og rann allur ágóði af söfnunarstarfinu til rannsókna, fræðslu, ráðgjafa og stuðnings við krabbameinssjúklinga og aðstandendur þeirra.

Við höfum ákveðið að velja topp fimm mottur Siglufjarðar og lítur hann svona út:

1. Birgir Ingimars.

2. Árni Skarp.

3. Ægir Eðvalds.

4. Hilmar Hreiðars.

5. Óli Agnars.


Birgir Ingimars skartar gullfallegri mottu sem fer honum mjög vel að eigin sögn. Hann leggur mikinn metnað í snyrtingu á mottunni, og hefur víst verið tíður gestur á hárgreiðslustofu Sillu undanfarnar vikur. Birgir er því vel að sigrinum kominn. 

Okkur nemendum í 10. bekk finnst þetta framtak frábært og viljum við hrósa öllum sem lögðu Krabbameinsfélagi Íslands lið í þessari baráttu. Við höfum fylgst með valinkunnum körlum sem hafa safnað skeggi hér í firðinum og finnst okkur flott að sjá þá vel skreytta með mottum af öllum stærðum og gerðum.
Það er okkar ósk að þessir ágætu herramenn haldi sig við motturnar þrátt fyrir að þessi svokallaði MOTTU- mars sé senn á enda.
Hér með höfum við nemendur í 10. bekk skorað á karlmenn í Siglufirði að halda skegginu út apríl líka.

Kveðja, 10. bekkur.


Athugasemdir

12.mars 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst