Kveðja frá Siv Friðleifsdóttir
sksiglo.is | Fréttir á landsvísu | 04.01.2010 | 07:00 | | Lestrar 969 | Athugasemdir ( )

Svöl hjón. Sigurður Hlöðversson, tæknifræðingur á Siglufirði og Sigurleif B. Þorsteinsdóttir, þroskaþjálfi, voru mætt suður í nýárssjósundið í Nauthólsvíkinni. Hitastig sjávar var mínus 1,7 gráður, en norðanmenn þola allt
Á nýársdag hitti ég hressa Siglfirðinga fyrir sunnan í ísköldum sjó.
Þessi svölu hjón brostu hringinn þótt hitastig sjávar væri mínus 1,7 gráða.
Siv Friðleifsdóttir gerir sig klára fyrir nýárssjósundið.

Eins og flestir vita er Siv mikill áhugamaður um sjóböð og frestar flestu til þess að komast í sitt sjóbað. Sú hugmynd hefur kviknað að koma á sjóbaðsaðstöðu við sundhöllina hér í Siglufirði og verður fróðlegt að sjá hvort hún kemst á koppinn. Þá væri hægt stunda sjóstrandveiði, leggjast í sjóbað og kannski fylgjast með skútukeppninni í leiðinni.
Margir mættu í nýárssjósundið þótt kalt væri.

Athugasemdir