Skólar sameinaðir í Fjallabyggð

Skólar sameinaðir í Fjallabyggð Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur samþykkt tillögur fræðslunefndar um framtíðarskipan fræðslumála í Fjallabyggð. Í

Fréttir

Skólar sameinaðir í Fjallabyggð

Bæjarstjórn Fjallabyggðar hefur samþykkt tillögur fræðslunefndar um framtíðarskipan fræðslumála í Fjallabyggð. Í tillögunum felst að Tónskóli Ólafsfjarðar og Tónlistarskóli Siglufjarðar verði sameinaðir í eina stofnun, Leikskólarnir Leikhólar og Leikskálar í eina stofnun og  Grunnskóli Ólafsfjarðar og Grunnskóli Siglufjarðar í eina stofnun.



Við það verða þrjár fræðslustofnanir í Fjallabyggð í stað sex eins og nú er, þ.e. Tónskóli Fjallabyggðar, Leikskóli Fjallabyggðar og Grunnskóli Fjallabyggðar. Stefnt er að því að stofnanirnar taki til starfa að hausti 2010.

Stofnanirnar  munu allar hafa starfsstöðvar á Siglufirði og í Ólafsfirði. Skipulagður verður skólaakstur til og frá Siglufirði fyrir nemendur frá Ólafsfirði í 7-10 bekk eftir opnun Héðinsfjarðarganga og stefnt að sameiningu yngra stigs í Ólafsfirði skólaárið 2012-13. Ráðnir verða skólastjórar og aðstoðarskólastjórar við allar stofnanir sem munu hafa starfsaðstöðu hvor í sínum bæ til að tryggja aðgengi að stjórnanda í öllum starfsstöðvum.

Bæjarstjórn hefur falið bæjarstjóra að auglýsa eftir skólastjórum nýrra skólastofnana og útfæra breytingarnar með tilliti til starfsmannahalds, í samráði við lögfræðinga og hlutaðeigandi stéttarfélög. Gert er ráð fyrir að tillögur um þetta efni verði teknar fyrir á fundi bæjarstjórnar í febrúar.

Í tilkynningu frá Fjallabyggð segir, að breið pólitísk samstaða sé um nýtt skipulag, enda tillögurnar unnar í nánu samstarfi meirihluta og minnihluta. Að baki tillögunum liggi mikil og vönduð vinna fræðslunefndar, starfsmanna og bæjarfulltrúa þar sem hagsmunir nemenda voru hafðir að leiðarljósi í hvívetna


Athugasemdir

12.mars 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst