Undir ruslpóstinn ?

Undir ruslpóstinn ? Í Fjarðarkjaftinum, grein í Hellunni sem út kom á dögunum fjallaði Sigríður Vigdís Vigfúsdóttir all ítarlega og röksamlega um hina

Fréttir

Undir ruslpóstinn ?

Inngangur Pósthússins á Siglufirði, sem þarna hefur verið í nokkra daga...amk.
Inngangur Pósthússins á Siglufirði, sem þarna hefur verið í nokkra daga...amk.
Í Fjarðarkjaftinum, grein í Hellunni sem út kom á dögunum fjallaði Sigríður Vigdís Vigfúsdóttir all ítarlega og röksamlega um hina nýju ruslatunnuvæðingu á Siglufirði.

Þar sem mikil áhersla var lögð á meðal annars hina miklu sjónmengun sem blasir við bæjarbúum sem sjá nánast allsstaðar oftar en ekki á áberandi stöðum ruslatunnusett, þrjár tunnur og stundum fleiri í röð.

Þessi grein Sigríðar hefur vakið mikla athygli og verið víða til umræðu á kaffistofum og á öðrum mannamótum.

Út frá því hafa verið sagðar margar kómískar sögur um þátttöku og ekki síður þáttökuleysi sumra íbúanna sem ekki eru sáttir við breytingarnar.

En þegar Pósthúsið fór að skarta sorptunnu við inngang Pósthússins á Siglufirði varð flestum orðfátt.

Sumir veltu því þó fyrir sér hvort svona mikill póstur utan opnunartíma bærist til Pósthússins, eða hvort þessi ruslagámur væri ef til vill fyrir ruslpóstinn.

Hvað sem því líður, þá eru allir sem ljósmyndarinn hefur heyrt tjá sig um þessa uppstillingu, þá væri þetta til háborinnar skammar fyrir stofnunina.
Dæmi svo hver sem vill.


Athugasemdir

11.mars 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst