Fullmannað í stjórn KS
sksiglo.is | Íþróttir | 09.12.2008 | 13:30 | | Lestrar 491 | Athugasemdir ( )
Fullmannað er í stjórn KS, Róbert Haraldsson hefur ákveðið að taka við formannssætinu af Ragnheiði Ragnarsdóttur. Róbert mun
einnig taka að sér þjálfun hjá KS og eru KS-ingar mjög ánægðir með komu hans.
Fast var sótt að Róbert um taka við formanninum er ljóst var að hann myndi hætta að þjálfa hjá Tindastól, gefum nú Róbert orðið:
Nú er ég búinn að loka hringnum. Ég byrjaði að spila í meistaraflokki árið 1987 með KS sem spiluðu þá í næst efstu deild og nú 22 árum seinna hef ég ákveðið að hefja störf hjá KS, bæði sem þjálfari yngri flokka og taka að mér formennsku í félaginu. Ég hef átt fjögur góð ár í þjálfun á Blönduósi og á Sauðárkróki. En það var erfið ákvörðun að hætta þjálfun meistaraflokks, en eftir góðan umhugsunarfrest þá ákvað ég í sameiningu við fjölskylduna að taka mér frí frá meistaraflokksþjálfun og vera heima hjá mér næsta sumar. Það er mikil tilhlökkun í mér að takast á við þau verkefni sem bíða hjá KS, félagið hefur ríka hefð í boltanum og ég vil leggja mitt að mörkum í að byggja upp öfluga fótboltakrakka sem skila sér í meistaraflokk félagsins í framtíðinni. Efniviðurinn er svo sannarlega til staðar, það er bara spurning hvernig við vinnum úr hlutunum.
Áfram KS.
Kveðja RH.

Athugasemdir