Grétar Rafn spilaði undir stjórn landsliðsþjálfara Liechtenstein

Grétar Rafn spilaði undir stjórn landsliðsþjálfara Liechtenstein Landsliðsmaðurinn, Grétar Rafn Steinsson, þekkir ágætlega til Hans-Peter Zaugg,

Fréttir

Grétar Rafn spilaði undir stjórn landsliðsþjálfara Liechtenstein

Ljósmynd, www.sportmyndir.net
Ljósmynd, www.sportmyndir.net
Landsliðsmaðurinn, Grétar Rafn Steinsson, þekkir ágætlega til Hans-Peter Zaugg, landsliðsþjálfara Liechtenstein, því hann lék undir stjórn hans hjá svissneska úrvalsdeildarliðinu Young boys á árunum 2004 og 2005.Íslendingar mæta Liechtenstein í vináttulandsleik á La Manga í dag og gerir Zaugg sér full grein fyrir því að leikurinn verði sínum mönnum erfiður enda séu auk Grétars margir frambærilegir leikmenn í íslenska liðinu.
,,Við megum ekki vanmeta styrk þeirra leikmanna sem eru í Íslenska landsliðinu,” sagði Zaugg í samtali við Liechtensteiner Vaterland.
,,(Grétar Rafn) Steinsson sem ég þjálfaði hjá Young Boys (í Sviss) og spilar nú á Englandi benti mér á nokkra íslenska leikmenn sem spila þar nú um mundir. Þeir eru því í topp æfingu. Þetta gæti valdið okkur vandræðum þar sem flestir okkar leikmanna hafa bara spilað æfingaleiki að undanförnu,” sagði Zaugg sem þó vonast eftir góðum úrslitum í dag. Varnarmaðurinn Martin Stocklasa á góðar minningar frá síðustu tveimur viðureignum þjóðanna, sem enduðu með 1:1 jafntefli og 3:0 sigri Liechtenstein. Hann á þó von á erfiðum leik í dag.
,,Íslendingar munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til þess að vinna leikinn eftir það sem undan hefur gengið í síðustu tveimur leikjum liðanna," sagði Stocklasa

Athugasemdir

29.janúar 2025

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst