Skarðsdalurinn bíður eftir þér
sksiglo.is | Íþróttir | 24.01.2010 | 09:34 | Egill Rögnvaldsson | Lestrar 512 | Athugasemdir ( )
Skíðasvæðið verður opið í dag Sunnudaginn 24. janúar frá kl 10-16, veðrið er mjög gott W-gola, hiti um 6 stig en kaldara eftir því sem ofar kemur og heiðskírt, færið er mjög gott búið að lina upp allar brekkur, allar lyftur í gangi.
Brekkur sem eru inn í dag eru T-brekka að hluta, Stálmasturbrekka, Þvergilið, brekka fyrir ofan Skíðaskála og það eru allar brekkur inn á Búngusvæðinu. Svæðið er búið að vera opið í 32 dag frá 5. desember.
Velkomin í fjallið starfsmenn
Athugasemdir