Tottenham sló Liverpool út úr deildabikarnum
mbl.is | Íþróttir | 13.11.2008 | 07:02 | | Lestrar 190 | Athugasemdir ( )
Tottenham sigraði Liverpool, 4:2, í 16-liða úrslitum ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu í kvöld en leikur liðanna fór fram á White
Hart Lane í London. Frazier Campbell lék vörn Liverpool grátt í kvöld en á sex mínútna kafla undir lok fyrri hálfleiks lagði hann
upp eitt mark og skoraði síðan tvívegis sjálfur, þannig að staðan var 3:0 í hálfleik.
Blackburn vann Sunderland, 2:1, á útivelli og á Stamford Bridge þarf óvænt að framlengja viðureign Chelsea og Burnley en þar er staðan 1:1.
Jóhannes Karl Guðjónsson er í liði Burnley.
Athugasemdir