Dagvistin Iðja

Dagvistin Iðja Dagvistin Iðja við Suðurgötu á Siglufirði hefur sýnt góðan árangur frá upphafi og skapað ýmsum sem minna meiga sín, góða félagslega

Fréttir

Dagvistin Iðja

Dagvistin Iðja við Suðurgötu á Siglufirði hefur sýnt góðan árangur frá upphafi og skapað ýmsum sem minna meiga sín, góða félagslega aðstöðu og til hinna ýmsu tegundar föndurs og dægurstyttingar.
Dagvistin Iðja er einskonar reynslu stofnun og er rekin með fjármagni frá sveitarfélaginu og ríkinu. Dagvistunin er ætluð fullorðnum fötluðum einstaklingum.

Sveinn Þorsteins leit þar inn í gær en þá var þar einnig fyrir Hjálmar Jónsson, sem þar mætir vikulega með nikku sína, stoppar þar í um klukkustund og spilar fyrir Iðjufélagana sem taka ánægðir lagið og syngja hástöfum með undirleik harmonikkuleikarans.

Forstöðukona stofnunarinnar er Lilja Guðmundsdóttir.

Sveinn tók þarna nokkrar myndir sem eru HÉR.




Athugasemdir

28.nóvember 2024

Sk Sigló ehf.

580 Siglufjörður
Netfang: sksiglo(hjá)sksiglo.is
Fylgið okkur á Facebook eða Twitter

Póstlisti

Skráðu netfangið þitt á póstlistan okkur.

Ábendingar

Ertu með ábendingu fyrir síðuna eða góða frétt? Sendu okkur þá póst og við könnum málið.

Sendu póst