Hér að neðan eru tenglar til gömlu vefanna.
- Vefurinn sem var hætt að uppfæra í des 2012
- Gamli "Stefnu"-vefurinn
- Lífið á Sigló (107 vefurinn)
- Elsti > Ljósmyndasafn Steingríms & Lífið á Sigló.
- Og
safn nýrra ljósmynda
+ Fuglasíða Steingríms
Elsta vefinn (og Fuglasíðu) er best að skoða með Microsoft Internet Explorer - Gömla fréttatengdu myndaalbúmi árin; 2007-2008-2009 Í myndaalbuminu er hægt að skoðamyndir í tveim stærðum + Slideshowe
- Athugið: Margir tenglar sem vísað er til á gömlu síðunum virka ekki, oftast vegna tilfærsla síðna sem vísað var til frá þeim árum sem "gömlu síðurnar" voru settar fyrst á netið.
Ljósmyndirnar
Heimasíður eru í raun, sjö talsins, allar vistaðar
hér. Þar er að finna yfir 25 þúsund ljósmyndir frá Siglufirði ofl. Þar er að finna andlitsmyndir af fólki sem
heimsótt hafa ljósmyndastofu Kristfinns Guðjónssonar á Siglufirði, þekkt andlit og einnig óþekkt andlit, sem fólk er beðið um
að láta vita ef það þekkir. Þá eru þarna ýmsar aðrar ljósmyndir frá ýmsum tækifærum, sem bæði
Kristfinnur og aðrir ljósmyndarar hafa tekið, sem og mínar einnig, en alls eru komnar yfir 30 þúsund myndir á síðurnar
Siglfirska fréttablaðið Lífið á
Sigló, lifandi fréttavefur um daglegt líf á Siglufirði. Vefur er uppfærður daglega með nýjum uppákomum, ásamt
ljósmyndum.
Fréttamyndir Morgunblaðsins,Dagblaðið MYND, ofl. dagblöð, auk heimablaða. Fréttir tengdar Siglufirði, ásamt myndum sem birtust með viðkomandi fréttum, og hundruð annarra ljósmynda sem ekki komu með fréttunum á þeim tíma. Þá eru einnig fréttir og myndir annarra blaða sem ég (Steingrímur) hefi átt þátt í að koma á framfæri, á fréttamannsferli mínum á árunum 1961-1976
Gömul vegamál ,þar sem fram koma ýmsar heimildir um vegamál tengdum Siglufirði, allt frá 1929 er fyrstu umræður um jarðgöng komu upp á Íslandi, og þá undir Siglufjarðarskarð.
(<<< Upphafleg vegahleðsla við Skarðsveg sem enn stendur)
Gamlar brunasögur, frásagnir úr gömlum heimablöðum ofl.
Bíó-Saga Siglufjarðar, þar eru allar finnanlegar heimildir um þróun kvikmyndasýninga á Siglufirði, frá upphafi til loka kvikmyndasýninga á Siglufirði, árin 1917-1999 - Árið 1999 var síðast sýnd kvikmynd í Nýja Bíó á Siglufirði eftir 75 ára starfsemi, og sem á þeim tímapunti var elsta starfandi kvikmyndahús landsins.
Síldar & Lýsis-Saga, Hér eru allar greinar og fréttir sem tengdar eru síldarbræðslu, úr Siglfirskum blöðum, allt frá 1917- 1950 ásamt ýmsum fleiri heimildum um Síldarævintýrið. Verkefnið er styrkt af Síldarvinnslan hf (enn er unnið að söfnun gagna)