Ástorg á Siglufirði
sksiglo.is | Norðlenskar fréttir | 12.09.2009 | 17:35 | | Lestrar 930 | Athugasemdir ( )
Það hafa eflaust margir Siglfirðingar fengið sér bíltúr og eða heilsubótargöngu eftir nýja veginum sem liggur frá Siglufirði að Héðinsfjarðargöngum.
Og hinir sömu væntanlega tekið eftir hinu stórglæsilega afdrepi sem Vegagerðin hefur látið gera norðan við veginn uppi á Ásnum.
Þaðan er gott útsýni, meðal annars yfir á byggðina.
Þessi ljósmynd var tekin í dag og þarfnast hún vart frekari skýringa.
En staðnum hefur ekki enn svo vitað sé verið gefið nafn, ljósmyndarinn hefur farið þarna á svæðið nokkrum sinnum og kallar það Ástorg.
ÁSTORG, er nokkuð betra nafn til?

Athugasemdir