Fyrstu farfuglarnir komnir.
sksiglo.is | Almennt | 25.03.2011 | 10:50 | Guðmundur Skarphéðinsson | Lestrar 287 | Athugasemdir ( )
Tveir Tjaldar hvíldu sig á gömlum bryggjustaurum framan við Bátahúsið í morgun.
Þeir mæta árlega í lok mars þannig að þeir eru á réttum tíma til að boða okkur betri tíð með blóm í haga. Um áratugi hafa tjaldar verpt í firðinum, lengst af eitt par en á seinustu árum hefur þeim fjölgað aðeins og tóku margir eftir því að í fyrra verptu þeir nánast í miðjum bæ hér niðri á Eyrinni í grend við Rammafyrirtækið og komu upp ungum.
Athugasemdir